Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 8/2019

Nr. 8/2019 10. janúar 2019

GJALDSKRÁ
fyrir rotþróargjald í Mosfellsbæ.

1. gr.

Af öllum húseignum í Mosfellsbæ sem staðsettar eru á deiliskipulögðum íbúðasvæðum og á lög­býlum þar sem fráveituvatn húseigna er leitt í rotþrær skal greiða árlegt rotþróargjald sam­kvæmt gjaldskrá þessari, sem skal varið til þess að standa straum af kostnaði við hreinsun og tæm­ingu rotþróa í sveitarfélaginu, sbr. 18. gr. samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ, nr. 1014/2010.

2. gr.

Fyrir tæmingu hverrar rotþróar skal greiða kr. 42.885. Sé ekkert mannvirki á lóð, greiðist ekki rotþróargjald. Gjalddagar rotþróargjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fast­eigna­skatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu hans.

Óski húseigandi eftir því að rotþró sé tæmd til viðbótar við reglubundna tæmingu, skal hann greiða fyrir slíka tæmingu samkvæmt reikningi losunaraðila.

3. gr.

Rotþróargjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar og ber hann ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Rotþróargjaldið má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eig­enda­skipta. Nýtur rotþróargjaldið lögveðréttar með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfarar­veði, sbr. 23. gr. í samþykkt um fráveitu Mosfellsbæjar.

4. gr.

Við álagningu árlegs rotþróargjalds getur bæjarstjórn með einfaldri samþykkt sinni nýtt sér heimild í 4. mgr. 15. gr. laga nr. 9/2009, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorku­lífeyris­þega.

5. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af bæjarstjórn Mosfellsbæjar með vísan til samþykktar um fráveitu í Mosfellsbæ nr. 1014/2010, staðfestist hér með skv. 25. gr. laga nr. 7/1998 um holl­ustu­hætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi. Við sam­þykkt gjaldskrárinnar fellur úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis nr. 1151/2012.

Mosfellsbæ, 10. janúar 2019.

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2019