Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur, í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og að fengnu samþykki lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, ákveðið eftirfarandi fyrir hönd bæjarins:
Að bílastæði sunnan til í Gránufélagsgötu til móts við hús nr. 41A verði merkt sem einkabílastæði fyrir hreyfihamlaða. Merkingin gildir í tvö ár.
Auglýsing þessi tekur gildi við birtingu.
F.h. Akureyrarbæjar, 9. nóvember 2022,
María Markúsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
|