Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 785/2019

Nr. 785/2019 23. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 29. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/39 frá 10. janúar 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 148/2019, frá 14. júní 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 23.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breyt­ingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbún­aðar­framleiðslu.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðar­framleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. ágúst 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. september 2019