Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 927/2016

Nr. 927/2016 7. nóvember 2016

AUGLÝSING
frá landskjörstjórn um fjölda kjördæmissæta í Norðvesturkjördæmi og Suðvesturkjördæmi.

Landskjörstjórn gerir kunnugt: að í ljósi fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þingsæti við nýafstaðnar alþingiskosningar 29. október 2016 skuli við næstu almennu alþingiskosningar vera átta þingsæti í Norðvesturkjördæmi, sjö kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti, en þrettán þingsæti í Suðvesturkjördæmi, ellefu kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti, sbr. 5. mgr. 31. gr. stjórnar­skrárinnar, nr. 33/1944, og 9. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000.

Reykjavík, 7. nóvember 2016.

 Kristín Edwald.
  Þórir Haraldsson. Sigrún Benediktsdóttir.
  Ástráður Haraldsson. Gunnar Sturluson.

Þórhallur Vilhjálmsson.


B deild - Útgáfud.: 8. nóvember 2016