Skipulagsstofnun staðfesti 25. ágúst 2021 óverulega breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. júní 2021. Í breytingunni felst að hesthúsasvæði ofan þjóðvegar í Vík er stækkað og fært til austurs. Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 25. ágúst 2021.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
|