1. gr.
Við 1. gr. bætist nýr töluliður, 58. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/544 frá 20. apríl 2020 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Bandaríkin í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins eða umflutningur um Sambandið á tilteknum alifuglavörum í tengslum við alvarlega fuglainflúensu.
2. gr.
Ofangreind framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. október 2020.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|