Skipulagsstofnun staðfesti 30. apríl 2019 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings eystra 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 10. janúar 2019. Í breytingunni felst að 16,8 ha landbúnaðarsvæði, Ráðagerði í landi Steinmóðsbæjar, er breytt í frístundabyggð fyrir allt að 8 frístundahúsalóðir. Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 30. apríl 2019.
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.
Ottó Björgvin Óskarsson.
|