Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 18/2023

Nr. 18/2023 19. janúar 2023

GJALDSKRÁ
Bláskógaveitu (hitaveitu), Bláskógabyggð.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir orkuveitusvæði Bláskógaveitu frá og með auglýsingu í B-deild Stjórnar­tíðinda. Öll verð í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts.

 

2. gr.

Afnotagjöld af heita vatninu eru sem segir:

Daggjald/mælagjald/hemlagjald.
Stærð mælis/hemils DN 15 mm   44,80 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 20 mm   45,90 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 25 mm   69,60 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 32 mm   72,00 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 40 mm 119,40 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 50 mm 179,80 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 65 mm 220,70 kr./dag
Stærð mælis/hemils DN 80 mm 257,50 kr./dag
     
Heitt vatn um rennslismæli, Biskupstungum.
H1A. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús 127,60 kr./m³
H3A. Garðyrkja/Hitaveitan Brúin   32,00 kr./m³
V4A. Verslun, þjónusta, iðnaður og opinberar byggingar   95,60 kr./m³
     
Heitt vatn um hemil, Biskupstungum.
L1. Garðyrkja   14,00 kr./mínútulítra á dag
L2. Íbúðarhús/sumarhús 113,00 kr./mínútulítra á dag
L3. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar   47,50 kr./mínútulítra á dag
H1D. Hemlagjald   96,70 kr./mínútulítra á dag
     
Heitt vatn um rennslismæli, Laugardal.
H1L. Almenn notkun, íbúðarhús/sumarhús 127,60 kr./m³
H3L. Garðyrkja   32,00 kr./m³
V4L. Verslun, iðnaður og opinberar byggingar   95,60 kr./m³
     
Heitt vatn um hemil, Laugardal.
H2. Íbúðarhús/sumarhús 113,00 kr./mínútulítra á dag
H4. Mýrarhúsaskógur 113,00 kr./mínútulítra á dag
       

 

3. gr.

Heimæðargjöld Bláskógaveitu eru sem hér segir:

Íbúðarhús að 450 m³ 461.128 kr., umfram m³ 345 kr.
Opinberar byggingar og iðnaðarhús að 450 m³ 461.128 kr., umfram m³ 98 kr.
Gróðurhús og stórnotendur.    7.786 kr. mínútulítrinn lágmark 61 m/l
Sumarhús 781.597 kr. fast gjald

 

4. gr.

Tengigjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru miðuð við byggingarvísitölu. Grunnvísitala (grunnur 2010) októbermánaðar 2022, 175,1 stig. Bláskógaveitu er heimilt að breyta tengigjöldum í samræmi við breytingu á nefndri vístölu.

 

5. gr.

Lágmarksnotkun fyrir sumarhús er 642 rúmmetrar á ári, óháð notkun, og skal greiða fyrir þá notkun samkvæmt gjaldskrá. Fari ársnotkun sumarhúss fram yfir 642 rúmmetra á ári, þá skal greiða fyrir hvern umframrúmmetra skv. gjaldskrá ásamt lágmarksnotkunargjaldi.

 

6. gr.

Ein mælagrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja auka mælagrind greiðast 50.000 kr.

 

7. gr.

Lágmarksstilling á hemli verður 3 l/m.

 

8. gr.

Bláskógaveita hefur rétt til að loka fyrir afhendingu á heitu vatni til húsveitu viðskiptamanns sem vanrækt hefur að greiða hitaveitugjöld skv. gjaldskrá þessari. Allan kostnað af lokun og opnun á ný greiðir sá sem vanskilunum veldur, hverju sinni 16.000 kr.

 

9. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var af framkvæmda- og veitustjórn Bláskógabyggðar 21. nóvem­ber 2022 og staðfest af sveitarstjórn Bláskógabyggðar 9. desember 2022, er hér með staðfest sam­kvæmt orkulögum nr. 58/1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi við birtingu í Stjórnar­tíðindum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 121/2022.

 

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 19. janúar 2023.

 

F. h. r.

Sigríður Svana Helgadóttir.

Hreinn Hrafnkelsson.


B deild - Útgáfud.: 23. janúar 2023