Óveruleg breyting deiliskipulags Þeistareykjavirkjunar. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 11. apríl 2019 að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Þeistareykjavirkjunar. Breytingin felst í færslu á borsvæði B-P, niðurrennslissvæði, um 1.600 metra til suðurs og verður skammt austan Þeistareykjaveggjar, nýr áfangastaður skilgreindur fyrir listaverk með bílastæðum og heimild fyrir þjónustubyggingu með salernum og færslu á veglínu á um 6,6 km kafla á suðurhluta skipulagssvæðis A og sunnan þess. Til að gera grein fyrir allri breytingu veglínunnar er skipulagssvæði A stækkað til suðurs. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá málsmeðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.
Þingeyjarsveit, 13. maí 2019.
Guðjón Vésteinsson skipulagsfulltrúi.
|