Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 551/2019

Nr. 551/2019 2. maí 2019

AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu ákveðið eftirfarandi:

  1. Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Ægisgötu 10, Nýlendugötumegin.
  2. Að afmarkað verði bifreiðstæði fyrir hreyfihamlaða við Ljósheima 2.
  3. Að afmarkað verði bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða við Laufásveg 71.

Bílastæði er merkt með umferðarmerkinu D01.21/22 samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 2. maí 2019.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 12. júní 2019