Fosshólar 3 og 4, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14. október 2021 tillögu að deiliskipulagi fyrir Fosshóla 3 og 4. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að á hvorum stað megi byggja íbúðarhús, gestahús og reiðhöll/skemmu. Gert er ráð fyrir tengingu nýs vegar við Sumarliðabæjarveg (281) og hefur henni verið fundin staður í samráði við Vegagerðina. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 10. nóvember 2021.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|