Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 108/2020

Nr. 108/2020 10. september 2020

LÖG
um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (kaupréttur og áskriftarréttindi).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

    Á eftir orðunum „áhættu sjóðsins“ í a-lið 6. tölul. 2. mgr. 36. gr. a laganna kemur: eða fela aðeins í sér kauprétt eða áskriftarréttindi.

 

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört í Reykjavík, 10. september 2020.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 11. september 2020