Deiliskipulag hafnar- og miðsvæðisins í Hrísey. Bæjarráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 6. júlí 2017 samþykkt deiliskipulag fyrir hafnar- og miðsvæði í Hrísey. Skipulagssvæðið afmarkast af Norðurvegi og Austurvegi til norðausturs, af lóðarmörkum Austurvegar 6 og Austurvegar 8 til austurs, af strandlengjunni og höfninni til suðurs og vesturs og af lóðarmörkum Norðurvegar 28 til norðvesturs. Í skipulaginu er gert grein fyrir lóðamörkum, byggingarreitum og samgöngumálum. Gert er m.a. ráð fyrir uppbyggingu verslunar og þjónustu á miðsvæði. Með auglýsingu þessari fellur úr gildi eldra deiliskipulag hafnarsvæðisins frá 1996. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 23. ágúst 2017,
Anna Bragadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
|