Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Efsti-Dalur II. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Efsta-Dals II í Laugardal. Í breytingunni felst fjölgun lóða og stækkun byggingarreita auk þess sem breytingar eru gerðar á núverandi skipulagsskilmálum innan svæðisins. Samþykkt í sveitarstjórn 25. nóvember 2022.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 1. september 2023.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|