Breyting á deiliskipulagi Naustahverfis, 3. áfangi – Nonnahagi 21-23. Skipulagsráð Akureyrarkaupstaðar hefur þann 13. mars 2019 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Nonnahaga 21-23. Breytingin felur í sér að í stað einbýlishúsalóða við Nonnahaga 21 og 23 er gert ráð fyrir lóð fyrir 6 íbúða fjölbýli. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarkaupstaðar, 25. mars 2019,
Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.
|