1. gr.
Innheimta skal gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi samkvæmt gjaldskrá þessari, sbr. samþykkt nr. 32/2007 um meðhöndlun úrgangs, og nr. 149/2004 um hirðu og meðhöndlun seyru. Gjöldin eru lögð á árlega og innheimt samhliða fasteignaskatti.
2. gr.
Sorphirðugjald.
a) |
240 lítra tunna |
36.960 kr. |
b) |
660 lítra tunna |
52.140 kr. |
c) |
1.100 lítra tunna |
54.450 kr. |
3. gr.
Sorpeyðingargjald.
Íbúðir |
20.800 kr. |
Sumarhús |
18.200 kr. |
Grá tunna 660 l |
66.550 kr. |
Græn tunna 1.100 l |
112.530 kr. |
Almennt sorp ½ m³ |
3.850 kr. |
Flokkað sorp gjaldskylt ½ m³ |
2.000 kr.
|
4. gr.
Gjald fyrir dýrahræ.
Lagt á aðila með búrekstur. |
|
Gjaldflokkur 1 (mikil notkun) |
120.000 kr. |
Gjaldflokkur 2 |
80.000 kr. |
5. gr.
Seyrulosunargjald.
Árlegt gjald fyrir tæmingu rotþróa |
11.500 kr. |
Aukalosun seyru |
45.000 kr. |
6. gr.
Annað.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps 9. desember 2020 samkvæmt ákvæðum 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og samþykkt nr. 32/2007 um meðhöndlun úrgangs, sbr. samþykkt nr. 244/2011 um fráveitur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Gjaldskráin öðlast gildi eftir birtingu í B-deild Stjórnartíðinda, frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1393/2019.
Skeiða- og Gnúpverjahreppi, 31. janúar 2021.
Kristófer Tómasson sveitarstjóri.
|