1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. og 4. gr.
2. gr.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði A í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
|
1. |
Almennt gjald |
kr. |
1.750 |
|
2. |
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
1.000 |
|
3. |
Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar |
kr. |
1.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði B í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
|
1. |
Almennt gjald |
kr. |
1.500 |
|
2. |
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
800 |
|
3. |
Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar |
kr. |
1.250 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir hverja gistieiningu í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl á þjónustusvæðum A og B er 500 kr. á nótt.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
|
1. |
Almennt gjald |
kr. |
5.000 |
|
2. |
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
2.500 |
|
3. |
Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar |
kr. |
4.000 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
|
1. |
Almennt gjald |
kr. |
4.000 |
|
2. |
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
2.000 |
|
3. |
Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar |
kr. |
3.250 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
|
1. |
Sturtugjald, eitt skipti |
kr. |
300 |
|
2. |
Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring |
kr. |
1.000 |
|
3. |
Afnot af þvottavél, eitt skipti |
kr. |
500 |
|
5. |
Afnot af þurrkara, eitt skipti |
kr. |
500 |
|
5. |
Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) |
kr. |
500 |
|
6. |
Útseld vinna sérfræðinga |
kr. |
16.000 |
|
7. |
Útseld vinna landvarða |
kr. |
12.000 |
|
8. |
Útgáfa leyfa, stór verkefni |
kr. |
50.000 |
|
9. |
Útgáfa leyfa, lítil verkefni |
kr. |
10.000 |
|
10. |
Aðgangur að íshellum, pr. mann |
kr. |
1.000 |
|
|
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum |
kr. |
500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.
Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi á þjónustusvæði A, sbr. 2. gr.
4. gr.
Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 – 24.00):
|
1. |
Flokkur A – Fólksbifreið, 5 manna og færri |
kr. |
750 |
|
2. |
Flokkur B – Fólksbifreið, 6-9 manna |
kr. |
1.000 |
|
3. |
Flokkur C – Rúta, 10-18 manna |
kr. |
1.800 |
|
4. |
Flokkur D – Rúta, 19-32 manna |
kr. |
3.500 |
|
5. |
Flokkur E – Rúta, 33-64 manna |
kr. |
6.400 |
|
6. |
Flokkur F – Rúta, 65 manna og fleiri |
kr. |
9.000 |
|
7. |
Bifhjól |
kr. |
300 |
Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 715/2018 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. maí 2019.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Stefán Guðmundsson.
|