Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1378/2019

Nr. 1378/2019 23. desember 2019

GJALDSKRÁ
fyrir heimaþjónustu hjá Reykjavíkurborg.

1. gr.

Greiðslur.

Notandi heimaþjónustu sem fær þjónustu vegna þrifa á heimili sínu greiðir kr. 1.265 fyrir hverja unna vinnustund á dagvinnutíma. Gjaldið er endurskoðað árlega. 

Önnur félagsleg heimaþjónusta, þ.e. umönnunarþjónusta á dagvinnutíma og kvöld- og helgar­þjónusta er endurgjaldslaus.

2. gr.

Undanþága frá greiðslu/lækkun greiðslu.

Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir notendur sem einungis hafa tekjur samkvæmt framfærslu­viðmiði TR eða þar undir. Árið 2019 er framfærsluviðmiðið kr. 310.800 fyrir þá sem búa einir og eru með heimilisuppbót og kr. 248.105 fyrir þá sem búa með öðrum.

Upphæðir munu hækka í samræmi við hækkanir á bótum almannatrygginga.

Þeir notendur heimaþjónustu sem hafa tekjur umfram tekjur frá TR eða samsvarandi fjárhæð, greiða aldrei hærri upphæð fyrir þjónustu en sem nemur 50% af umframtekjum.

Þjónusta umfram 6 vinnustundir á mánuði á hvert heimili er endurgjaldslaus.

3. gr.

Ákvörðun um lækkun eða niðurfellingu.

Ákvörðun um lækkun eða niðurfellingu á greiðslu notenda heimaþjónustu er tekin af starfs­manni þjónustumiðstöðva og skal lögð fyrir fund matshóps til afgreiðslu.

4. gr.

Málskot.

Ákvörðun um synjun á lækkun eða niðurfellingu greiðslu vegna heimaþjónustu má skjóta til velferðarráðs Reykjavíkurborgar. Skal það gert skriflega og eigi síðar en 4 vikum eftir að viðkom­andi barst vitneskja um ákvörðun.

Ákvörðun velferðarráðs má skjóta til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála Hafnar­húsinu við Tryggvagötu. Skal það gert eigi síðar en 4 vikum frá því að viðkomandi barst vitneskja um ákvörðun.

5. gr.

Gildistaka.

Gjaldskráin er sett á grundvelli 29. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 25. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.

Samþykkt í borgarstjórn 5. nóvember 2019.

Gjaldskrá þessi gildir frá og með 15. janúar 2020. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1230/2018.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. desember 2019.

Dagur B. Eggertsson.


B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2020