Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 675/2021

Nr. 675/2021 7. júní 2021

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Ásahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur hreppsnefnd Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

 

Deiliskipulagsbreyting, Lækjartún og Kálfholt.
Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi Lækjartúns og Kálfholts sem tekur til lóðar Kálfholts, L219273, merkt F1 innan deiliskipulags. Breytingin felur í sér að lóðin breytist úr frístundalóð í íbúðarlóð. Einungis er um að ræða lítilsháttar breytingu á afmörkuðu svæði, afmörkun lóðar er óbreytt, byggingarreitur er stækkaður en aðkoman er sú sama.
Samþykkt í hreppsnefnd 19. maí 2021.

 

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 7. júní 2021.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 8. júní 2021