Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 967/2019

Nr. 967/2019 22. október 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftir­farandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Brúarhvammur, lóð 1, landnr. 167225, og lóð 2, landnr. 174434.
Lóðin Brúarhvammur, lóð 1, er sumarbústaðalóð og Brúarhvammur, lóð 2, er viðskipta- og þjón­ustulóð. Á lóð 2 mun rísa gistiheimili. Breytingin felur í sér stækkun byggingarreits á lóð 1 og aukningu byggingarmagns innan hans auk þess sem bætt er við aðkomuvegi að Brúar­hvammi, lóð 1, um lóð 2.
Leyfilegt byggingarmagn innan byggingarreits B-1 er 140 m² sumarhús á einni hæð auk 30 m² geymslu.
Samþykkt í sveitarstjórn 19. september 2019.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 22. október 2019.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 5. nóvember 2019