1. gr.
Árlegt sorphirðugjald, vegna sorphirðu, sorpeyðingar og afnota af gámasvæði í Blönduósbæ er sem hér segir:
1.1 |
Á hverja íbúð og á lögbýli eða íbúðarhús utan þéttbýlis sem hirt er á 21 dags fresti: |
|
Sorphirðugjald |
kr. 24.200 |
|
Sorpförgunargjald |
kr. 24.200 |
|
Samtals: |
kr. 48.400 |
|
Gjald skv. þessum lið miðast við að sorp sé hirt úr einu 240 lítra sorpíláti fyrir almennt sorp og einu 240 lítra sorpíláti fyrir pappír á hvern greiðanda. Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum skal greiða kr. 24.200 fyrir hvert viðbótar 240 lítra sorpílát. |
1.2 |
Fyrir sumarhús, kr. 24.200 sorpförgunargjald, enda geti notendur þeirra losað sig við sorp á gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um. |
1.3 |
Fyrir hesthús og gripahús í þéttbýli, kr. 24.200 á hús enda geta eigendur notað gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um. |
2. gr.
Gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu skv. 1. gr. skal innheimta með fasteignagjöldum.
3. gr.
Að lokinni álagningu gjalda skv. 1. gr. gefst greiðendum 30 daga frestur til að gera athugasemdir við gjaldtöku sveitarstjórnar. Ósk um breytingu gjalda skal vera skrifleg og vel rökstudd og er sveitarstjórn heimilt að breyta gjaldtöku með tilliti til réttmætis framsettra athugasemda.
4. gr.
Gjaldskrá endurvinnslustöðvar er sem hér segir:
Þeir sem koma með úrgang á gámastæðið að Efstubraut 5a, Blönduósi greiða eftir rúmmáli fyrir losun á úrgangi í eftirtöldum flokkum:
Stærð farms: |
0,25 (1/4) m³ |
0,50 (1/2) m³ |
0,75(3/4) m³ |
1 m³ |
Gjald |
1.250 kr. |
2.500 kr. |
3.750 kr. |
5.000 kr. |
|
Gjaldskylt frá heimilum |
Gjaldskylt frá rekstraraðilum |
Vörubretti, kassar o.þ.h. |
Já |
Já |
Timbur – þar með talið ljós-/hvítmálað eða plasthúðað frá framkvæmdum |
Já |
Já |
Húsgögn o.þ.h. |
Nei |
Já |
Grófur úrgangur frá framkvæmdum |
Já |
Já |
Bólstruð húsgögn, dýnur o.þ.h. |
Nei |
Já |
Blandaður úrgangur frá framkvæmdum |
Já |
Já |
Blandaður heimilisúrgangur o.þ.h. |
Nei |
Já |
Steinefni frá framkvæmdum |
Já |
Já |
Bílrúður |
Já |
Já |
Jarðvegur |
Já |
Já |
Gras og hey |
Nei |
Já |
Trjágreinar |
Já |
Já |
Garðaúrgangur |
Nei |
Já |
Brotajárn |
Nei |
Já |
Flokkaður úrgangur sem fer til endurvinnslu er án gjalds fyrir alla.
Flokkaður úrgangur skal vera án aðskotahluta eða mengandi efna í samræmi við reglur um flokkun og móttöku úrgangs.
Úrgangsflokkur þarf að vera staðfestur af starfsmanni á gámastöð.
Afgreiðslugjald á gjaldskyldum flokkum er að lágmarki 1.250 kr. með vsk.
Þegar um stærri farma er að ræða (5-10 m³) þarf að semja sérstaklega um móttöku þeirra.
5. gr.
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Blönduósbæjar á grundvelli samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Blönduósbæ og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1529/2020 fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Blönduósbæ.
Blönduósi, 30. desember 2021.
Valdimar O. Hermannsson sveitarstjóri.
|