Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 102/2020

Nr. 102/2020 29. janúar 2020

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Flóahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Ásgarður, L211849.
Óveruleg breyting er gerð á gildandi deiliskipulagi 6,1 ha spildu í Ásgarði, L211849.
Breytingin felst í að þrír byggingarreitir áður samtals 6.781 m², sameinast í einn byggingarreit sem verður 9.626 m² að stærð.
Að öðru leyti haldast skilmálar gildandi deiliskipulags óbreyttir.
Samþykkt í sveitarstjórn 3. desember 2019.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 29. janúar 2020.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 12. febrúar 2020