Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og innviðaráðuneytið hafa staðfest meðfylgjandi samning sem sveitarstjórnir Mosfellsbæjar og Kjósarhrepps hafa gert með sér um félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk með vísan til 7. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, 2. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Mosfellsbær tekur að sér félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk í Kjósarhreppi skv. nánari ákvæðum samningsins.
Samningurinn sem gerður er á grundvelli 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Innviðaráðuneytinu, 14. ágúst 2023.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 14. ágúst 2023.
F. h. r.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|