Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 341/2019

Nr. 341/2019 1. apríl 2019

GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Seltjarnarnesbæ.

1. gr.

Af hundum á Seltjarnarnesi skal bæjarsjóður Seltjarnarnesbæjar innheimta gjöld samkvæmt gjald­skrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald í Sel­tjarnarnes­kaupstað (nú Seltjarnarnesbæ), nr. 579/2008, sbr. 3. gr. hennar.

2. gr.

Við umsókn um skráningu hunds skal innheimta gjald sem hér segir:

Skráning kr. 12.500
Skráning eftir útrunnin frest,    
sbr. 1. mgr. 2. gr. samþykktar um hundahald kr. 15.600
Bráðabirgðaskráning kr. 5.500

3. gr.

Af skráðum hundum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:

Fyrir hvern hund, kr. 15.000.

4. gr.

Greiðsla fyrir ábyrgðartryggingu er innifalin í gjaldi samkvæmt 2. og 3. gr.

5. gr.

Við afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald, kr. 22.000.

Gjald fyrir fyrstu afhendingu skráðs hunds, þegar eftirlitsgjald og vottorð eru í skilum, er þó kr. 6.000.

Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.

6. gr.

Gjalddagi samkvæmt 3. gr. er 1. maí og eindagi 1. júní. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

Við afskráningu hunds ber að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.

7. gr.

Eigendur blindra-, leitar- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu gjalda samkvæmt 2. og 3. gr., enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi.

Hafi eigandi skráðs hunds lokið grunnnámskeiði í hundauppeldi viðurkenndu af Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis er heimilt að veita afslátt af gjöldum samkvæmt 2. og 3. gr. gjaldskrár þessarar samkvæmt nánari reglum sem bæjarstjórn setur. Bæjarstjórn getur enn fremur sett reglur um slík afsláttarkjör fyrir hundaeigendur sem hafa í hvívetna fullnægt ákvæðum samþykktar um hundahald í ákveðinn árafjölda eftir nánari ákvörðun bæjarstjórnar.

8. gr.

Ofangreind gjaldskrá bæjarstjórnar Seltjarnarness staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, samanber 3. gr. samþykktar um hundahald í Seltjarnarneskaupstað (nú Seltjarnarnesbæ), nr. 579/2008, með síðari breytingu og öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um sama efni nr. 1072/2016.

Seltjarnarnesi, 1. apríl 2019.

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 11. apríl 2019