Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1119/2020

Nr. 1119/2020 5. nóvember 2020

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Árborg.

Breyting á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis Selfoss.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti þann 20. nóvember 2019 breytingu á deili­skipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis Selfoss vegna fjölnota íþróttahúss. Breytingin felur í sér stækkun á byggingarreit og tilsvarandi færslu á stíg. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr skipulags­laga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

 

Selfossi, 5. nóvember 2020.

 

Sigurður Andrés Þorvarðarson skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2020