Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 665/2021

Nr. 665/2021 7. júní 2021

REGLUR
um gagnaskil fjármálafyrirtækja.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna út eiginfjárgrunn, eiginfjárkröfur, stórar áhættu­skuldbindingar, vogunarhlutfall og lausafjárhlutfall í samræmi við lög um fjármála­fyrirtæki, nr. 161/2002, og reglugerð um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármálafyrirtækja, nr. 233/2017.

 

2. gr.

Tíðni og form gagnaskila fjármálafyrirtækja.

Fjármálafyrirtæki, sem skylt er að veita Fjármálaeftirlitinu upplýsingar á grundvelli laga um fjármála­fyrirtæki nr. 161/2002 og reglugerðar um varfærniskröfur vegna starfsemi fjármála­fyrirtækja nr. 233/2017, skal skila gögnum á því formi sem mælt er fyrir um í reglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) nr. 680/2014 frá 16. apríl 2014, með áorðnum breytingum, sbr. 3. gr. Gögnum skal skila með þeirri tíðni sem tilgreind er í reglugerðinni. 

 

3. gr.

Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 680/2014 frá 16. apríl 2014, um tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagnaskila fjármálafyrirtækja til eftirlitsstofnana, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/79 frá 18. desember 2014, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla gagna­skila fjármálafyrirtækja að því er varðar kvaðabundnar eignir, einkvæmt gagna­punkta­líkan og gagnareglur, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/227 frá 9. janúar 2015, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagnaskila fjármálafyrirtækja, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðs­ins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1278 frá 9. júlí 2015, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja að því er varðar leiðbeiningar, form og skilgreiningar, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/313 frá 1. mars 2016, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi gagnaskil til viðbótar við hefðbundin gagnaskil að því er varðar laust fé sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðs­ins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/322 frá 10. febrúar 2016, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja að því er varðar lausafjárhlutfall, sem sett er á grund­velli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðs­ins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/428 frá 23. mars 2016, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagnaskila fjármálafyrirtækja að því er varðar upplýsingar um vogunarhlutfall, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1702 frá 18. ágúst 2016, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja að því er varðar leiðbeiningar og form, sem sett er á grund­velli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 80/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 59-64.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1443 frá 29. júní 2017, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameigin­legu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórn­ar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77-84.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2114 frá 9. nóvember 2017, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja að því er varðar leiðbeiningar og form, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samn­inginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1627 frá 9. október 2018, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja að því er varðar varfærnismat, sem sett er á grundvelli reglu­gerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 64/2020 frá 30. apríl 2020.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/429 frá 14. febrúar 2020, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 680/2014 varðandi tæknilega framkvæmdarstaðla vegna gagna­skila fjármálafyrirtækja, sem sett er á grundvelli reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 147/2021 frá 23. apríl 2021.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) nr. 680/2014 og reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/79, 2015/227, 2015/1278, 2016/313, 2016/322, 2016/428, 2016/1702, 2017/1443, 2017/2114, 2018/1627 og 2020/429 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):

  1. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1465398840317&uri=CELEX:32014R0680, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 191, þann 28. júní 2014, bls. 1-1861;
  2. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1465398840317&uri=CELEX:32015R0079, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 014, þann 21. janúar 2015, bls. 1-44;
  3. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1465398840317&uri=CELEX:32015R0227, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 048, þann 20. febrúar 2015, bls. 1-630;
  4. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1465398840317&uri=CELEX:32015R1278, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 205, þann 31. júlí 2015, bls. 1-300;
  5. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1594032873867&uri=CELEX:32016R0313, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 60, þann 5. mars 2016, bls. 5-58;
  6. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1594032873867&uri=CELEX:32016R0322, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 64, þann 10. mars 2016, bls. 1-142;
  7. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1465398840317&uri=CELEX:32016R0428, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 083, þann 31. mars 2016, bls. 1-55;
  8. http://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1507300574057&uri=CELEX:32016R1702, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 263, þann 29. september 2016, bls. 1-513;
  9. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1594032873867&uri=CELEX:32017R1443, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 213, þann 17. ágúst 2017, bls. 1-527;
  10. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1594032873867&uri=CELEX:32017R2114, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 321, þann 6. desember 2017, bls. 1-427;
  11. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1594032873867&uri=CELEX:32018R1627, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 281, þann 9. nóvember 2018, bls. 1-525; og
  12. https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?qid=1594032873867&uri=CELEX:32020R0429, birt í OJ deild L, undir­deild R, nr. 96, þann 30. mars 2020, bls. 1-1092.

 

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í a-lið 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 505/2017 og nr. 964/2017.

 

Seðlabanka Íslands, 7. júní 2021.

 

  Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 8. júní 2021