Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 35/2024

Nr. 35/2024 16. ágúst 2024

AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingum á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/28/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerðir öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 972/2024 um (10.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrir­myndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðis­vottorðum/opin­berum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/28/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/779/EB og 2007/240/EB, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1874 frá 8. júlí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 um reglur um beitingu reglugerða Evrópu­þingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýra­heilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutn­inga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 1 með aug­lýsingu þessari.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2020 frá 26. júlí 2024 um breytingu og leiðréttingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum flokkum dýra og tilteknum afurðum úr dýraríkinu, sem eru ætlaðar til manneldis, til Sambandsins og um leið­réttingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2024/399. Reglugerðin er birt á ensku í fylgi­skjali 2 með aug­lýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 16. ágúst 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Svava Pétursdóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 29. ágúst 2024