Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 107/2020

Nr. 107/2020 12. febrúar 2020

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 6. febrúar 2020 eftirfarandi:

Hraungata 8, óveruleg breyting á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta.
Breytingin gerir ráð fyrir sólskýli á svölum 2. hæðar.

Eskiás, óveruleg breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Tillagan gerir ráð fyrir því að B-rými reiknist til grundvallar nýtingarhlutfalli og að ákvæði um kjallara verði fellt út úr tillögunni.

Aðkomutákn á Arnarnesi, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir aðkomutákn við Hafnarfjarðarveg.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

 

Garðabæ, 12. febrúar 2020.

 

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.


B deild - Útgáfud.: 13. febrúar 2020