1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að fallast á tillögu hlutaðeigandi sveitarstjórnar og ráðherra, sbr. umsagnir Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna, og skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 10. janúar 2023:
- Blámi-fjárfestingafélag ehf.
- Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf.
- Flói ehf.
- Holtavegur 10 ehf.
- Hömlur ehf.
- Hömlur fyrirtæki ehf.
- Iceland Construction ehf.
- Landsbréf hf.
- Lindir Resources ehf.
- Malbikunarstöðin Höfði hf.
- Span ehf.
- SPN1 hf.
2. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftirtalinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:
- E-17 ehf.
- Fasteignafélagið Sunnubraut ehf.
- H Akureyri ehf.
- Hömlur 1 ehf.
- Hömlur B&T ehf.
- Landsvaki ehf.
- Laugarnesbyggð ehf.
- Miðland ehf.
- NIKEL ehf.
- Tangabryggja ehf.
- Vogabyggð ehf.
3. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 10. janúar 2020.
Katrín Jakobsdóttir.
|