Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 482/2021

Nr. 482/2021 16. apríl 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps vegna íbúðarbyggðar og verslunar- og þjónustusvæðis í landi Geldingsár.

Skipulagsstofnun staðfesti 16. apríl 2021 breytingu á aðalskipulagi Svalbarðsstrandarhrepps 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. nóvember 2020.
Í breytingunni felst að landbúnaðarsvæði í landi Geldingsár er breytt í þrjár nýjar íbúðarbyggðir, ÍB23, ÍB24 og ÍB25 og nýtt verslunar- og þjónustusvæði V9. Einnig er Heiðarbyggð, frístundabyggð F5, minnkuð um 1,5 ha.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 16. apríl 2021.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 3. maí 2021