Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkt eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi:
Deiliskipulag Melhúsatúns – Sæbraut 6 og Selbraut 42. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi vegna lóðanna Sæbrautar 6 og Selbrautar 42, þar sem byggingarreitum er breytt og nýtingarhlutfall hækkað.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Seltjarnarnesi, 10. janúar 2020.
Sigurður Valur Ásbjarnarson skipulagsfulltrúi.
|