Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1123/2020

Nr. 1123/2020 5. nóvember 2020

AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Fannafold 170.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkur­borgar, þann 23. október 2020, breytingu á deiliskipulagi norðan Grafarvogs vegna lóðarinnar nr. 170 við Fannafold. Í breytingunni felst að viðbygging 3 x 5 m fer út fyrir byggingarreit á vesturhluta lóðar, auk anddyris byggingar á suðurhlið sem er 2,74 m². Byggingarmagn eykst um 15 m² og verður því samanlagt um 320 m². Grunnflötur hússins verður 245 m². Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

 

Sjómannaskólareitur.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án stað­festingar borgarráðs, þann 21. október 2020, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sjómanna­skóla­reits til minnkunar á samþykktu byggingarmagni úr 5.635 m² í 4.500 m² á lóð (reit E) sem úthlutað hefur verið til Leigufélags aldraðra til byggingar almennra íbúða á grundvelli laga nr. 52/2016. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

 

Spöngin, eining G, Spöngin 3-5/Móavegur 2 og 4.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án stað­festingar borgarráðs, þann 14. október 2020, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingar G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að heimilt verði að girða fyrir sérafnotafleti íbúða á jarðhæð á alla vegu. Uppdrættir hafa hlotið meðferð sam­kvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

 

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 5. nóvember 2020.

 

Björn Axelsson.


B deild - Útgáfud.: 19. nóvember 2020