Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur hreppsnefnd Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Hestheimar. Deiliskipulagið tekur til þriggja landspildna (landnr. 165277, 212134 og 209012) í Hestheimum. Breytingin felur í sér meðal annars að byggingarmagn á byggingarreit Í1 er aukið um 50 m² þar sem heimild er til að stækka núverandi íbúðarhús og byggja bílskúr. Hámarksstærð húss og bílskúrs getur verið samanlagt allt að 350 m². Þá er afmörkuð lóð fyrir íbúðarhús, Í2. Byggingarreitur Ú2 fyrir hesthús er færður til. Innan hans er heimilt að byggja allt að 2.000 m² hesthús/reiðskemmu. Byggingarreitur fyrir gestahús, Þ3, er einnig færður og innan hans er gert ráð fyrir allt að 8 húsum sem hvert um sig getur verið allt að 40 m². Samþykkt af hreppsnefnd þann 21. nóvember 2018.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 27. mars 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|