Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 701/2019

Nr. 701/2019 5. júlí 2019

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Við 3. tölul. viðauka 3 við reglugerðina bætist nýr málsliður svohljóðandi:
Írland:    Pas/Passport/Passeport (vegabréfskort (e. passport card)), útgefið til ríkisborgara Írlands.

2. gr.

Við viðauka 3 við reglugerðina bætist nýr töluliður svohljóðandi:
Gild ferðaskilríki sem gefin eru út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1953 um samevrópskt ferðaskilríki vegna endursendinga ríkisborgara þriðju landa sem ekki hafa rétt til dvalar. 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í ákvæðum laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast hún þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 5. júlí 2019.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Haukur Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 24. júlí 2019