Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 867/2019

Nr. 867/2019 19. september 2019

AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi í Norðurþingi.

Athafnasvæði A5, Kringlumýri.
Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á fundi sínum þann 27. ágúst 2019 breytingu á deili­skipulagi athafnasvæðis A5. Breytingar á athafnasvæði A5 fela í sér tvo nýja bygg­ingarreiti norðan við slátur­hús og kjötvinnslu og lítilsháttar tilfærslu á lóðarmörkum nyrst á lóðinni. Þessir bygg­ingarreitir eru ætlaðir undir starfsmannahús. Settir eru nánari skilmálar um útlit húsa og notkun þeirra í skipulags­tillögunni.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.

Húsavík, 19. september 2019.

Gaukur Hjartarson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 3. október 2019