Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkt eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi:
Deiliskipulag Vestursvæðis. Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir íbúasvæði vestan Lindarbrautar að frátöldum Bygggörðum og breytt deiliskipulag fyrir Vestursvæði að meðtalinni lóð fyrir hjúkrunarheimili, safnasvæði við Nesstofu og golfvöll í Suðurnesi. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi deiliskipulag fyrir Vestursvæði frá 23. september 2009.
Seltjarnarnesi, 23. ágúst 2017.
Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri.
|