Heiðarbrún 6, Stokkseyri, deiliskipulag. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti á fundi sínum 18. janúar 2023, tillögu að deiliskipulagi fyrir parhús á lóðinni Heiðarbrún 6-6a á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að lóðin Heiðarbrún 6-6a, á Stokkseyri, sem er 853 m² að stærð, verði parhúsalóð (6-6b) og að heimilt verði að byggja parhús. Húsið verði á einni hæð með risi. Hámarksvegghæð verði allt að 3,0 m og mænishæð allt að 5,0 m. Nýtingarhlutfall verði allt að 0,2. Tillagan var auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust og hefur niðurstaða bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar verið auglýst í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ofangreind skipulagstillaga hafa hlotið meðferð samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Selfossi, 2. mars 2023.
F.h. bæjarstjórnar,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi.
|