Svartsengi, iðnaðarsvæði og svæði verslunar og þjónustu. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Grindavíkurbæjar, þann 28. apríl 2020, breytingu á deiliskipulagi í Svartsengi. Breytingin felur í sér að byggingarreitir orkuvers 6 og orkuvers 6-stækkun eru stækkaðir samanlagt um 1.400 m² og leyfileg þakhæð aukin um 3 m. Þá eru nýir byggingarreitir afmarkaðir fyrir kæliturn OV7, lokahús og hjóðdeyfa OV7 og stækkun á skiljustöð OV5 ásamt því að afmarkað byggingar- og framkvæmdasvæði er stækkað. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Suðurhóp 2. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Grindavíkurbæjar, þann 28. apríl 2020, óverulega breytingu á deiliskipulagi við Víkurbraut 70-72 og götur sunnan Hópsbrautar. Breytingin varðar lóðina að Suðurhópi 2. Breytingin felur í sér að verið er að minnka byggingarreit til norðurs um 10,2 m þar sem minnst er, stækka byggingarreit til austurs um 22 m að hluta og stækka byggingarreit til suðurs um 12 m að hluta. Byggingarreitur minnkar sem nemur 3.161 m² og lóð stækkar um 6.320 m². Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grindavíkurbæ, 30. apríl 2020.
Atli Geir Júlíusson skipulagsfulltrúi.
|