Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 961/2019

Nr. 961/2019 21. október 2019

REGLUGERÐ
um takmarkanir við veiðum með línu á djúpslóð.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um takmarkanir við veiðum með línu á djúpslóð í fiskveiðilandhelgi Íslands.

2. gr.

Norður af Horni.

Veiðar með línu eru óheimilar á tímabilinu frá og með 1. mars til og með 17. ágúst á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°36,40´N – 23°22,00´V
  2. 66°42,50´N – 23°42,50´V
  3. 66°57,50´N – 22°00,00´V
  4. 67°02,00´N – 22°00,00´V
  5. 67°02,94´N – 21°45,00´V
  6. 66°29,20´N – 21°45,00´V

Að sunnan afmarkast svæðið af línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá viðmiðunarlínu, sbr. lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Á Sporðagrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°34,42´N – 20°20,50´V
  2. 66°38,44´N – 20°16,67´V
  3. 66°47,37´N – 19°52,94´V
  4. 66°51,60´N – 19°21,89´V
  5. 66°38,32´N – 19°24,68´V

4. gr.

Norðan Haganesvíkur.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°22,10´N – 19°32,30´V
  2. 66°26,99´N – 19°32,94´V
  3. 66°29,48´N – 18°58,76´V
  4. 66°23,98´N – 18°53,78´V

Að sunnan afmarkast svæðið af línu sem dregin er í 12 sjómílna fjarlægð frá viðmiðunarlínu, sbr. lög nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

5. gr.

Á Sléttugrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 67°07,00´N – 17°24,00´V
  2. 67°07,00´N – 17°20,00´V
  3. 66°51,00´N – 17°04,00´V
  4. 66°51,00´N – 17°20,00´V

6. gr.

Á Digranesflaki.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°12,00´N – 13°48,00´V
  2. 66°23,00´N – 12°51,00´V
  3. 66°14,00´N – 12°40,00´V
  4. 66°03,00´N – 12°36,80´V
  5. 66°00,00´N – 12°51,80´V
  6. 65°59,00´N – 13°34,00´V

7. gr.

Í Lónsdýpi og á Stokksnesgrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar á tímabilinu frá og með 1. ágúst til og með 31. desember á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 64°14,60´N – 14°10,50´V
  2. 63°59,00´N – 13°47,00´V
  3. 63°47,30´N – 14°05,90´V
  4. 63°39,10´N – 14°32,10´V
  5. 63°35,60´N – 14°49,00´V
  6. 63°39,00´N – 14°58,70´V
  7. 63°50,00´N – 14°52,00´V
  8. 63°54,30´N – 14°24,40´V
  9. 64°04,50´N – 14°42,00´V

8. gr.

Á Mýragrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftir­farandi hnita:

  1. 63°59,00´N – 15°24,00´V
  2. 63°50,00´N – 15°24,00´V
  3. 63°50,00´N – 15°47,00´V
  4. 63°59,00´N – 15°57,00´V

9. gr.

Á Mýragrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar á tímabilinu frá og með 1. ágúst til og með 31. desember á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°50,00´N – 15°24,00´V
  2. 63°30,00´N – 15°26,00´V
  3. 63°29,00´N – 15°35,00´V
  4. 63°44,00´N – 15°46,00´V
  5. 63°50,00´N – 15°47,00´V

10. gr.

Suður af Ingólfshöfða.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°46,00´N – 16°33,00´V
  2. 63°37,00´N – 16°17,00´V
  3. 63°36,00´N – 16°37,00´V
  4. 63°37,00´N – 16°55,00´V
  5. 63°45,00´N – 16°47,00´V

11. gr.

Á Öræfagrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar á tímabilinu frá og með 1. ágúst til og með 31. desember á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°26,00´N – 16°41,00´V
  2. 63°29,00´N – 16°00,00´V
  3. 63°25,00´N – 16°00,00´V
  4. 63°22,00´N – 16°35,00´V

12. gr.

Á Síðugrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°35,00´N – 17°19,00´V
  2. 63°28,00´N – 17°19,00´V
  3. 63°28,00´N – 17°38,00´V
  4. 63°35,00´N – 17°38,00´V

13. gr.

Á Kötlugrunni.

Veiðar með línu eru óheimilar allt árið á svæði er markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 63°20,00´N – 18°49,00´V
  2. 63°24,00´N – 18°05,00´V
  3. 63°12,00´N – 18°05,00´V
  4. 63°15,00´N – 18°41,00´V

14. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

15. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglugerð nr. 68/2003, um bann við veiðum með línu og fiskibotnvörpu á Sléttugrunni, reglugerð nr. 230/2003, um bann við línuveiðum á Kötlugrunni, reglugerð nr. 311/2003, um bann við línuveiðum við Suður- og Suðausturland og reglu­gerð nr. 887/2009, um bann við línuveiðum fyrir Suðausturlandi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. október 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 4. nóvember 2019