Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 443/2019

Nr. 443/2019 29. apríl 2019

AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgar­svæðinu ákveðið eftirfarandi:

  1. Að afmörkuð verði biðstöð fyrir hópbifreiðar (söfnunarstæði) staðsett sunnan við Skúlagötu og vestan Klapparstígs.
    Biðstöð er merkt með umferðarmerkinu D09.21 samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
  2. Að Laugavegur verði einstefna til austurs milli Klapparstígs og Frakkastígs.
    Einstefnu skal merkja með umferðarmerkinu D07.11 og B01.21 við hinn enda götunnnar þar sem einstefnu lýkur samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
  3. Að fyrri auglýsing um einstefnu á Laugavegi til vesturs á sama vegarkafla verði felld úr gildi.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

F.h. lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, 29. apríl 2019,

Hulda Elsa Björgvinsdóttir staðgengill.


B deild - Útgáfud.: 15. maí 2019