Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 14. júlí 2020 eftirfarandi:
Uppsátur og naust, breyting á deiliskipulagi Garðahverfis. Tillagan gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit fyrir uppsátur og naust.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 15. apríl 2021 eftirfarandi:
Hraungata 7, óveruleg breyting á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir að leyfilegur þakhalli verði 0-15° í stað 15-45° og að heimilaðar verði 4 hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er lyftuhús. Veggur stigagangs á milli húshluta skal vera lokaður á þeirri hlið sem snýr að Holtsvegi.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum 18. mars 2021 eftirfarandi:
Hólmatún 25, óveruleg breyting á deiliskipulagi Hólmatúns. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að reisa allt að tvö smáhýsi ekki stærri en 20 m² að samanlögðu.
Espilundur 3, óveruleg breyting á deiliskipulagi Lunda. Tillagan gerir ráð fyrir að stækka byggingarreit um 1,6 m til austurs og 3,6 m til suðurs.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsstjóri Garðabæjar, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 20/2017 eftirfarandi:
Samþykkt 18. febrúar 2021:
Asparlundur 11-21, óveruleg breyting á deiliskipulagi Lunda. Breytingin gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreitum til suðurs á allri raðhúsalengjunni.
Samþykkt 10. mars 2021:
Víkurgata 17, óveruleg breyting á deiliskipulagi Urriðaholts, vesturhluta. Breytingin gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir útigeymslu á bak við stoðvegg að lóðarmörkum.
Austurhraun 7, óveruleg breyting á deiliskipulagi Molduhrauns. Breytingin gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreit á vesturhlið lóðarinnar.
Sunnuflöt 17, óveruleg breyting á deiliskipulagi Flata. Breytingin gerir ráð fyrir að byggingarreitur fyrir efri hæð stækki til suðurs um 85 sm.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Garðabæ, 28. apríl 2021.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
|