Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1114/2020

Nr. 1114/2020 12. nóvember 2020

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi miðbæjar fyrir Bjarmastíg 5.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 11. nóvember 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Bjarmastíg 5.
Breytingin felur í sér fjölgun bílastæða innan lóðar í fjögur bílastæði, lækkun jarðvegs­hæðar, skiptingu eignar í tvö fastanúmer, hækkun nýtingarhlutfalls úr 0,757 í 0,780 og að byggingarreitur breikkar um 2,8 metra á norðurhlið fyrir nýtt stigahús.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

Breyting á deiliskipulagi Sjúkrahússins á Akureyri.
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur þann 28. október 2020 samþykkt deiliskipulagsbreytingu fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri.
Breytingin felur í sér að byggja hjólaskýli á tveimur hæðum við D-álmu sjúkrahússins og and­dyri stækkar við norðurhluta hússins.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 12. nóvember 2020,

 

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 17. nóvember 2020