Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 487/2023

Nr. 487/2023 23. maí 2023

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi KA-svæðis – Lundarskóla – Lundarsels.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti 7. mars 2023 breytingu á deiliskipulagi KA-svæðis – Lundarskóla – Lundarsels.
Breytingin tekur til íþrótta- og æfingasvæðis KA og felur í sér að bætt er við nýjum byggingarreit fyrir tengibyggingu, settir skilmálar fyrir byggingarreiti fyrir markatöflu, sjónvarpsupptökuhús og fjögur ljósamöstur fyrir flóðlýsingu, 27 m á hæð. Þá gerir tilllagan ráð fyrir fjölgun bílastæða meðfram Þingvallastræti og tilfærslu núverandi innkeyrslu inn á svæðið.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 23. maí 2023,

 

María Markúsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 23. maí 2023