Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 20/2022

Nr. 20/2022 26. ágúst 2022

AUGLÝSING
um viðbótarsamning við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Albaníu.

Hinn 24. febrúar 2009 var bandaríska utanríkisráðuneytinu afhent staðfestingarskjal Íslands vegna viðbótarsamnings við Norður-Atlantshafssamninginn frá 4. apríl 1949 um aðild lýðveldisins Albaníu sem gerður var í Brussel 9. júlí 2008, sbr. Samninga Íslands við erlend ríki nr. 75, þar sem samningurinn er birtur. Alþingi hafði hinn 12. febrúar 2009, með þingsályktun nr. 4/136, heimilað ríkis­stjórninni að staðfesta viðbótarsamninginn. Viðbótarsamningurinn öðlaðist gildi 27. mars 2009.

Viðbótarsamningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.

 

F. h. r.

Martin Eyjólfsson.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2023