Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1363/2019

Nr. 1363/2019 19. desember 2019

REGLUR
um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. september til 30. desember 2019.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátrygg­inga­félaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

2. gr.

Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýs­ingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016. 

3. gr.

Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1902 frá 7. nóvember 2019 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátrygg­ingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2019 til 30. desember 2019 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópu­sambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 293, þann 14. nóvember 2019, bls. 5-100:

https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=uriserv:OJ.L_.2019.293.01.0005.01.ENG.

4. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 19. desember 2019.

Unnur Gunnarsdóttir.

Anna Mjöll Karlsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. janúar 2020