Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 686/2015

Nr. 686/2015 16. júlí 2015

REGLUGERÐ
um próf til viðurkenningar bókara.

1. gr.

Prófnefnd viðurkenndra bókara hefur umsjón með prófi til viðurkenningar bókara samkvæmt 43. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald.

Ráðherra skipar þriggja manna prófnefnd til fjögurra ára í senn. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, sbr. 26. gr. laga nr. 63/2006 um háskóla. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af Félagi viðurkenndra bókara. Einn nefndarmaður skal skipaður án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skal skipa með sama hætti.

Ákvarðanir prófnefndar eru endanlegar á stjórnsýslustigi.

Prófnefnd skal rita fundargerðir. Í þær skal færa ákvarðanir nefndarinnar og niðurstöður prófa.

2. gr.

Próf skulu að jafnaði haldin einu sinni ár hvert og skal auglýsa þau í fjölmiðlum og á heimasíðu ráðuneytisins með a.m.k. átta vikna fyrirvara. Eigi er skylt að standa fyrir prófi nema a.m.k. 30 þátttakendur hafi skráð sig í próf.

Ráðherra ákveður prófgjöld að fenginni tillögu prófnefndar. Skulu þátttakendur greiða prófgjald fyrir þau tímamörk sem prófnefnd ákveður. Upplýsingar um fjárhæðir prófgjalda skulu liggja fyrir í síðasta lagi fjórum vikum fyrir próf. Miða skal við að tekjur af gjaldinu standi undir kostnaði við prófið.

Gjald skv. 2. mgr. er endurkræft ef af prófi verður ekki.

Prófnefnd ákveður hvort haldið skal sjúkra- og upptökupróf gegn aukaprófgjaldi. Sjúkra- og upptökupróf skulu auglýst sérstaklega á heimasíðu ráðuneytisins. Slík próf skulu aðeins haldin ef þátttakendur eru a.m.k. 10.

3. gr.

Prófnefnd tekur ákvörðun um prófsefni það sem prófað er úr. Prófið skiptist í þrjá hluta; tvo skriflega hluta og eitt raunhæft verkefni. Prófnefnd semur prófefnislýsingu fyrir hvern hluta og skal hún liggja fyrir á heimasíðu ráðuneytisins þegar próf eru auglýst samkvæmt 1. mgr. 2. gr.

Við ákvörðun skv. 1. mgr. skal prófnefnd leggja til grundvallar að efni hvers hluta krefjist þekkingar á eftirtöldum sviðum:

I. Reikningshald:

a) Grundvallarreglur reikningshalds.
b) Lög og reikningsskilareglur.
c) Ársreikningsgerð.

II. Skattskil og upplýsingatækni:

a) Skattskil einstaklinga og lítilla fyrirtækja.
b) Lög um tekjuskatt og virðisaukaskatt.
c) Upplýsingakerfi og öryggisþættir.

III. Raunhæft verkefni úr efnisþáttum I. og II. prófhluta leyst með tölvu:

a) Prófjöfnuður.
b) Uppgjör, þ.m.t. virðisaukaskatts.
c) Uppstilling ársreiknings.
d) Útreikningur á tekjuskatti.

4. gr.

Prófnefnd tekur hverju sinni ákvörðun um fjölda sjálfstæðra úrlausnarefna, vægi og tímalengd prófhluta.

Prófnefnd er heimilt að fela óháðum aðilum að semja prófverkefni, fara yfir og gefa einkunn fyrir prófúrlausn. Prófverkefni skulu samin af einstökum prófnefndarmönnum eða þeim sem prófnefnd felur það starf. Verkefnin og vægi úrlausnarefna innan þeirra skulu lögð fyrir prófnefnd til samþykktar.

Þá er prófnefnd heimilt að semja við óháðan aðila um framkvæmd prófa.

 5. gr.

Prófúrlausnir skulu merktar prófnúmerum.

Við mat á úrlausnum skal gefin einkunn fyrir hvern prófhluta.

Einkunnir í einstökum prófhlutum skulu gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Lágmarkseinkunn til að standast einstaka prófhluta er 5,0. Til þess að standast fullnaðarpróf þarf prófmaður að hljóta a.m.k. 7,0 í vegna meðaleinkunn (lokaeinkunn) úr öllum prófhlutum. Vegin meðaleinkunn (lokaeinkunn) er gefin með tveimur aukastöfum. Ef prófmaður nær ekki tilskilinni lágmarkseinkunn, í einstökum prófhlutum eða veginni lokaeinkunn, er honum heimilt að þreyta próf að nýju þegar próf eru haldin skv. 2. gr.

Einkunnir skulu birtar prófmönnum innan 30 daga frá því að prófi lýkur.

Prófmaður á rétt á því að sjá prófúrlausn sína ef hann æskir þess innan fimmtán daga frá birtingu einkunnar. Próftaka er heimilt að skjóta mati á úrlausn sinni til prófnefndar til endurmats innan tveggja mánaða frá birtingu einkunnar. Prófnefnd getur skipað prófdómara til að endurskoða úrlausn próftaka á ábyrgð prófnefndar.

Ákvörðun prófnefndar um úrlausn er endanleg.

Til að standast próf til viðurkenningar bókara skal próftaki hafa lokið öllum prófhlutum með fullnægjandi árangri. Allir prófhlutar skulu vera dagsettir innan 3ja ára frá dagsetningu elsta prófsins. Nýtt próf fellir niður eldra próf (próf endurtekið), bæði að því er einkunn og dagsetningu varðar.

Prófnefnd skal afhenda þeim prófmönnum sem standast próf skírteini því til staðfestingar.

6. gr.

Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 43. gr. laga nr. 145/1994, um bókhald, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 535/2012 um próf til viðurkenningar bókara.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. júlí 2015.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Harpa Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. júlí 2015