Breyting á deiliskipulagi fyrir Hrafnaborg 10 og 12. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 27. janúar 2021 breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hrafnaborg 10 og 12. Breytingin felst m.a. í því að innan byggingarreits verður heimilt að byggja fjölbýlis- eða raðhús á einni eða tveimur hæðum en áður var aðeins heimilt að byggja á tveimur hæðum. Í stað þess að hámarksfjöldi íbúða á hvorri lóð sé 8 íbúðir verður hann 7 íbúðir fyrir Hrafnaborg 10 og 9 íbúðir fyrir Hrafnaborg 12. Skilmálum er breytt á þann hátt að í stað þess að hús verði með flötu þaki og 8,0 m hámarkshæð er mögulegt að hafa hús með flötu þaki og 7,0 m hámarkshæð eða hallandi þak og þá verður hámarkshæð 8,5 m. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 42. gr. og 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Vogum, 3. febrúar 2021.
F.h. bæjarstjórnar,
Daníel Arason forstöðumaður stjórnsýslu.
|