Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 684/2021

Nr. 684/2021 27. maí 2021

AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi í Sveitarfélaginu Vogum.

Grænaborg.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 28. apríl 2021 breytingu á deiliskipulagi fyrir Grænuborgarhverfi.
Í breytingunni felst m.a. að lóðarmörkum, byggingarreitum og aðkomum að lóðum við Grænu­borg 2-16 er breytt. Hámarksfjöldi íbúða í fjölbýlis- eða raðhúsum innan nokkurra lóða og bygg­ingar­reita við Hrafnaborg breytist. Innan byggingarreita á lóðum við Hrafnaborg 7, 9, 10, 11, 12 og 13 er sú breyting gerð að heimilt verður að byggja fjölbýlis- eða raðhús á 1-2 hæðum en áður var aðeins heimilt að byggja á tveimur hæðum. Skilmálum fyrir fjölbýlishús eða raðhús á tveimur hæðum (E) er breytt á þann hátt að í stað þess að hús verði öll með flötu þaki og 8,0 m hámarkshæð er mögulegt að hafa hús með flötu þaki og 7,0 m hámarkshæð eða hallandi þak og þá verður hámarkshæð 8,5 m. Skilmálum fyrir fjölbýlishús á fjórum hæðum (F) er breytt á þann hátt að í stað þess að hús verði öll með flötu þaki og 13,5 m hámarkshæð er mögulegt að hafa hallandi þak og þá verður hámarkshæð 15,0 m. Heildarfjöldi íbúða á skipulagssvæðinu var í gildandi deiliskipulagi 277 en verður skv. breytingu á deiliskipulagi 303.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 42. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

 

Vogum, 27. maí 2021.

 

Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 10. júní 2021