1. gr.
2.4. gr. gjaldskrárinnar orðast svo:
2.4 Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.
Fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.–16. gr. skipulagslaga skal greitt gjald sem nemur kostnaði Akureyrarbæjar við umsýslu og málsmeðferð vegna útgáfu leyfis og lögbundins eftirlits með framkvæmdum.
|
1. |
Minniháttar framkvæmdir |
70.486 kr. |
|
2. |
Framkvæmdir sem falla undir ákvæði laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 |
140.972 kr. |
|
3. |
Umfangsmiklar framkvæmdir |
Skv. samningi |
Skipulagsráð metur hverju sinni hvort talin er þörf á samningi milli Akureyrarbæjar og umsækjenda um útgáfu leyfis og lögbundins eftirlits byggt á umfangi framkvæmda, stærð framkvæmdasvæðis, tímalengd framkvæmda, eftirlitsþörf o.s.frv. Fjárhæð gjaldsins skal endurspegla kostnað við vinnu Akureyrarbæjar vegna undirbúnings og eftirlits með framkvæmdunum í samræmi við áætlun. Í samningnum skal m.a. gera grein fyrir kostnaði vegna aðkeyptrar vinnu ef hún er talin nauðsynleg við undirbúning eða eftirlit.
2. gr.
Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi við birtingu.
Samþykkt í bæjarstjórn Akureyrarbæjar 3. mars 2020.
F.h. Akureyrarbæjar, 24. júní 2020,
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður.
|