Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir.
Deiliskipulagsbreyting, Iða II, Gunnubrekka. Óverulegar breytingar eru gerðar á deiliskipulagi frístundabyggðar Iðu II, Gunnubrekku. Í breytingunni felst að deiliskipulag er teiknað inn á hnitsettan loftmyndagrunn eftir mælingu á staðnum. Auk þess er gert ráð fyrir breyttum staðvísi og staðföngum þar sem lóðir með staðföng Iðu II, lóðir verða að Gunnubrekku. Lóðanúmer breytast í samræmi við breytt staðföng. Breytingar á stærð og legu lóða ná yfir Gunnubrekkur 2,4,6,8,10 og 12. Að öðru leyti gilda deiliskipulagsskilmálar m.s.br. í samþykktu deiliskipulagi áfram í breyttu skipulagi. Samþykkt í sveitarstjórn 20. maí 2021.
Deiliskipulag, Kjaransstaðir II. Í deiliskipulaginu felst m.a. að notkun lóða breytist úr frístundalóðum í landbúnaðarlóðir, lóðum fækkar úr 7 í 6 og nýir byggingarskilmálar eru skilgreindir fyrir svæðið. Með samþykkt skipulagsins mun eldra skipulag fyrir sama svæði falla úr gildi. Samþykkt í sveitarstjórn 18. febrúar 2021.
Deiliskipulag, Bergsstaðir L167201. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreits fyrir 3 skemmur af stærðinni 15x15 m eða allt að 675 m2 í heildar byggingarmagni. Samþykkt í sveitarstjórn 18. febrúar 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Úthlíð, Brúnavegur 9 L167533 og Skyggnisvegur 26 L167555. Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi frístundasvæðis í landi Úthlíðar. Breytingin tekur til byggingarreita og og lóðamarka Brúnavegar 9 og Skyggnisvegar 26. Samþykkt í sveitarstjórn 20. maí 2021.
Deiliskipulagsbreyting, Reykholt, Bjarkarbraut 14 L190017 og 16 L190017 Óveruleg breyting er gerð á deiliskipulagi þéttbýlisins Reykholti. Breytingin felur í sér að nýtingarhlutfall lóðar Bjarkarbrautar 14 og 16 minnkar úr 0,40 í 0,25. Samþykkt í sveitarstjórn 24. júní 2021.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 6. júlí 2021.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|